Beint í efni

Um Sjónmál

Að fara yfir það sem er í sjónmáli — með sjónmáli.

Sjónmál er ný íslensk YouTube-rás og fyrirhugaður myndrænn fréttaskýringamiðill um málin sem móta framtíð Íslands.

Hugmyndin

Sagnfræði og heimildamyndir horfa gjarnan til fortíðar. Sjónmál horfir fram á við.

Við viljum skilja hvernig Ísland er að breytast, hvaða ákvarðanir bíða okkar og hvaða afleiðingar þær gætu haft. Um þetta eru til ótal rannsóknir, skýrslur, gagnasöfn og greiningar. Vandinn er sjaldnast að upplýsingarnar vanti — heldur að þær liggja í skjölum sem fáir hafa tíma til að lesa.

Sjónmál tekur þessar upplýsingar, rannsakar þær, setur þær í samhengi og breytir þeim í skýrar og sjónrænar frásagnir. Við gerum ráð fyrir að þú sért klár, forvitin(n) og hafir lítinn tíma. Þess vegna sýnum við frekar en að segja frá.

Markmiðið er ekki að spá fyrir um framtíðina með vissu, heldur að hjálpa fólki að skilja hvað gæti verið framundan. Við trúum því að upplýst samfélag taki betri ákvarðanir.

Verkfærin

  • Kvikmyndataka
  • Drónaskot
  • Kort
  • Gagnagrafík
  • Þrívídd
  • Viðtöl
  • Frásögn

Hvert mál fær þá framsetningu sem útskýrir það best. Stundum er það kort. Stundum drónaskot. Stundum ein tala sem fær að standa ein á skjánum.

Hver stendur að baki?

Jóel Daði Ólafsson

Höfundur og þáttastjórnandi

„Flestir nenna ekki að lesa langar skýrslur. Mér finnst það skemmtilegt. Sjónmál er leið fyrir mig til að kafa djúpt í málin og nota myndbandskunnáttu mína til að gera upplýsingarnar aðgengilegar öðrum.“

Jóel starfar við myndbandsframleiðslu undir nafninu Ímynd og hefur reynslu af því að útskýra flókin viðfangsefni með myndmáli. Sjónmál sameinar áhuga hans á samfélagsmálum, skýrslum og ítarlegri rannsóknarvinnu við kunnáttu í tökum, viðtölum, klippingu og grafík.

Í þáttunum kemur hann fram sem forvitinn þáttastjórnandi sem leitar svara — ekki sem sérfræðingur í öllum viðfangsefnunum.

Í undirbúningi

Framtíðin er í sjónmáli.